D250SE1 / 2
1 / 2
CTEK-40-315Fyrir heimili og fyrirtæki

D250SE

D250SE er sjálfvirkt DC-DC-hleðslutæki með 5 þrepum sem gefur allt að 20 A til 12 V neyslurafgeymis af blýsýru- eða liþíumgerð (LiFePO4) frá 40 til 300 Ah, í ökutækjum sem hafa ekki aðgang að rafmagni úr innstungu.

58.600 kr.Smásöluverð með VSK
CTEK-40-315

Sótt í Síðumúla 1 eða sent með Póstinum eða Dropp.

Helstu eiginleikar

D250SE er sjálfvirkt DC-DC-hleðslutæki með 5 þrepum sem gefur allt að 20 A til 12 V neyslurafgeymis af blýsýru- eða liþíumgerð (LiFePO4) frá 40 til 300 Ah, í ökutækjum sem hafa ekki aðgang að rafmagni úr innstungu. Það tekur straum um tvo innganga, frá rafal og sólarsellu, virkar með snjallrafölum sem stýrt er af tölvu ökutækisins og hefur hitanema sem bætir hleðsluna. Þegar neyslurafgeymirinn er fullur beinir D250SE viðhaldshleðslu að startrafgeyminum.

  • 20 A hleðsla, leiðrétt eftir hita, fyrir 40 til 300 Ah rafgeyma í akstri
  • Tveir inngangar: rafall og sólarsella samhliða, sólarstýring með MPPT
  • Virkar með snjallrafölum
  • Liþíum- og blýsýrustilling, AGM-stilling 14,4 V eða 14,7 V
  • Aðskilur rafgeymana og kemur í stað díóða og VSR-liða
  • Þolir skvettur og ryk (IP65); með SMARTPASS 120S fæst allt að 140 A