NXT 51 / 3
1 / 3
CTEK-40-659Fyrir heimili og fyrirtæki

NXT 5

NXT 5 er 5 A snjallhleðslutæki fyrir 12 V blýsýru- og liþíumrafgeyma (LiFePO4).

26.600 kr.Smásöluverð með VSK
CTEK-40-659

Sótt í Síðumúla 1 eða sent með Póstinum eða Dropp.

Helstu eiginleikar

NXT 5 er 5 A snjallhleðslutæki fyrir 12 V blýsýru- og liþíumrafgeyma (LiFePO4). NXT er línan fyrir ofan MXS: NXT 5 er byggt á nýjum grunni í svörtu húsi og hefur sömu aðgerðir og MXS 5.0, auk liþíumstillingar. Alsjálfvirk hleðsla í 8 þrepum, Recond fyrir djúpafhlaðna rafgeyma, AGM-stilling og sjálfvirk hitaleiðrétting halda rafgeyminum tilbúnum og kaplarnir eru sílikonhúðaðir. Comfort Connect-tengið sem fylgir er með gaffalskóm (U) í stað hringlaga kapalskóa, fyrir fasta tengingu við rafgeyminn.

  • 5 A hleðsla fyrir 12 V blýsýru- og LiFePO4-rafgeyma, 1,2 til 110 Ah, viðhaldshleðsla allt að 160 Ah
  • Kerfi fyrir mótorhjól, bíla, AGM, Lithium og Recond
  • Vekur liþíumrafgeyma með undirspennuvörn
  • Sjálfvirk hitaleiðrétting
  • Alsjálfvirkt, neistalaust og varið gegn rangri pólun
  • Sílikonhúðaðir kaplar, Comfort Connect með gaffalskóm (U) fylgir
  • IP65, 0,6 kg